
581 10 09
Aníta Ragnarsdóttir
Félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur
Aníta er með MA í félagsráðgjöf og þá hefur hún einnig lokið framhaldsnámi í fjölskyldumeðferð hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Aníta hefur unnið við barnaverndarmál frá árinu 2018, bæði hérlendis sem og erlendis. Aníta starfar í dag hjá könnunar- og meðferðarteymi Barnaverndar Reykjavíkur ásamt því að sinna meðferðarviðtölum hjá Domus Mentis. Þá er hún með víðtæka reynslu í að vinna með fjölskyldum og styðja þau í að leysa þann vanda og/eða áföll sem steðjar að hjá þeim. Eins er Aníta vön að vinna með fjölskyldur með erlendan menningarbakgrunn og að nýta túlka í meðferðarvinnunni.
Aníta sinnir einstaklingsmeðferð, parameðferð og fjölskyldumeðferð þar sem unnið er með að bæta líðan, samskipti og auka skilning skjólstæðinga á eigin aðstæðum.
Hægt er að bóka viðtal hjá Anítu með því að senda tölvupóst á dmg@dmg.is eða hringja í síma 581-1009.