581-1009
Sandra Sæmundsdóttir
Sálfræðingur
Sandra sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum. Hún sinnir m.a. meðferð við félagskvíða, almennri kvíðaröskun, þunglyndi, lágu sjálfsmati og áfallastreituröskun.
Menntun
Sandra Sif lauk BSc prófi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík 2013 og fór í framhaldinu út í meistaranám í afbrotafræði (Master in Criminology and Criminal Justice) í Griffith University í Ástralíu. Vorið 2019 lauk hún meistanámi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Í náminu hlaut hún fjölbreytta klíníska reynslu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga.
Í starfsnámi meistaranámsins fór hún á þrjá ólíka staði, fyrst á skólaskrifstofu Mosfellsbæjar, því næst á Kvíðameðferðastöðina og síðan á Barna- og unglingageðdeild (BUGL). Hún hefur því öðlast þó nokkra þjálfun og reynslu af notkun hugrænnar atferlismeðferðar. Hún hefur einnig sótt ýmis námskeið, vinnustofur og fengið tækifæri til að sitja málstofur framúrskarandi fræðimanna um greiningu og meðferð sálræns vanda.
Sandra Sif hefur sömuleiðis lokið við bóklegan hluta náms sem veitir sérfræðivottun í atferlisgreiningu (Board Certified Behavior Analyst Examination).
Sandra Sif starfar einnig sem sálfræðingur á heilsugæslunni í Grafarvogi.
Handleiðsla
Sandra sækir reglulega handleiðslu og nýtur ráðgjafar frá sérfræðingum og samstarfsfólki á Domus Mentis og á heilsugæslunni í Grafarvogi. Samstarfsfólk hennar starfar á mismunandi sviðum geðheilbrigðisþjónustu.
Hugræn atferlismeðferð
Sandra Sif beitir gagnreyndum aðferðum við greiningu og meðferð og styðst fyrst og fremst við hugræna atferlismeðferð (HAM). Hún nýtir gagnreynd mælitæki til að mæla árangur meðferðar.